8.6.2007 | 00:03
Amsterdamferðin
Síðustu helgi fór ég með Kibbu frænku og Sunnu mús til Amsterdam að heimsækja Melissu, Jerrel, Tómas (sem framvegis verður kallaður Jesús minn), Ellu og Saskiu.
Við gistum hjá Melissu sem var sko betra en að vera á nokkru hóteli. Þvílík þjónusta!
Við knúsuðum Tómas endalaust, versluðum endalaust, hlógum endalaust og borðuðum apríl (mars) með kaffinu .
Sunna sem er að verða 6 mánaða var frábær ferðafélagi og hún meira að segja kúkaði í hollenskt klósett! Já, hún kúkar í klósett þessi elska...það gengur bara betur en að rembast í bleyjuna!
Við fengum ábendingu um að hún ætti að byrja að "safna" borgum og hún er nú þegar komin með Reykjavík-Amsterdam.
Takk Melissa fyrir helgina, þetta var aðeins of stutt en gebba gaman. Ég sakna ykkar og hlakka til að sjá ykkur næst.
Um bloggið
Sara Guðmundsdóttir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hæ Sara mín,
Þetta var jú of stutt en rosa gaman. Næst verðið þið í viku, að minnsta kosti. Við höfðum allt of lítinn tíma til að versla :-).
Sjáumst í haust en heyrumst fyrir þann tíma.
Kærar kveðjur frá Melissu, Jerrel og Tómasi
P.S. Það er eitt apríl eftir, ég er svo svakalega dugleg deppa.
Melissa (IP-tala skráð) 9.6.2007 kl. 15:16
Þið eruð nú meiri dugnaðarforkarnir. Ég sé nú alveg á myndini hér fyrir ofan hvað Kristbjörg verður frábær amma. Hlaðin af börnumenda ekki leiðinlegt hlutverk
Aðalheiður Magnúsdóttir, 12.6.2007 kl. 07:02
Jesús minn!
...hún Maya mín kúkaði líka alltaf íklósett frá unga aldri! Er þetta eitthvað í ættinni?
Laufey Ólafsdóttir, 12.6.2007 kl. 11:19
Það hlýtur bara að vera, ég hef aldrei vitað annað eins! Ég er nánast hætt að skipta á kúkableyjum......svo er líka fyndið að hún pissar alltaf líka þegar ég set hana á klósettið
Sara Guðmundsdóttir, 12.6.2007 kl. 22:08
Takk fyrir þetta Sara mín. Gaman að lesa og frábærar myndir. Gleðilegan þjóðhátíðardag og knús til allra
Margrét St Hafsteinsdóttir, 17.6.2007 kl. 13:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.