The Wall

 

 Vildi bara deila því með ykkur að ég fór á frábæra tónleika á föstudagskvöldið í Laugardalshöllinni. Þar voru Dúndurfréttir ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands að taka The Wall. Þetta voru vægast sagt æðislegir tónleikar og fór Pétur Örn á kostum!! Ókei, ég skal viðurkenna að hann er bróðir minn en engu að síður stóð hann sig hrikalega vel. Reyndar gerðu þeir það allir og ekki síður kór Kársnesskóla sem var alveg frábær.

Við Bjarki fórum að tala um það á leiðinni heim eftir tónleikana hvað við erum alin upp við ólíka tónlist. Heima hjá mér voru Bítlarnir í fyrsta sæti og á eftir þeim Led Zeppelin, Pink Floyd,Eagles,Uriah Heep,Rolling Stones,Deep Purple of fl. Heima hjá honum voru Shawdos oft á fóninum ásamt John Denver. Þetta er bara frábært en mér finnst voða gaman hvað hann er að taka við sér í rokkinu. þetta kemur hægt en kemur þóTounge

Allavega þá mæli ég með því að þið kíkið á hljómsveitina Dúndurfréttir næst þegar þeir eru að spila, það er upplifun að hlusta á þá.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vó Sara - ég fór á fimmtudagskvöldinu - sat á fyrsta bekk og ég er ennþá að ná mér niðrá jörðina!  Hér eftir verð ég fastur gestur á Dúndurfrétta tónleikum. Þetta var bara ÆÐI!!  Gæsahúð og vellíðan      Þú mátt skila takk-i til Péturs   

Dagga (IP-tala skráð) 2.7.2007 kl. 20:34

2 identicon

Ohh mig langaði svo að fara...það hefur verið góð gæsahúð í gangi.

Regína (IP-tala skráð) 3.7.2007 kl. 15:13

3 identicon

Ógeðslegt svekk að hafa ekki verið á þessum tónleikum. Og ég meina óóóógeðslegt svekk.  Ég vona bara að þetta komi út á DVD.

Melissa (IP-tala skráð) 6.7.2007 kl. 20:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sara Guðmundsdóttir

Höfundur

Sara Guðmundsdóttir
Sara Guðmundsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 20080112221024 21
  • 20080112195653 21
  • 20080109013409 29
  • 20080109013408 28
  • Sara & Bjarki Næturvaktin

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband