Af hverju?

Af hverju getum við ekki sungið Eurovision lagið okkar á íslensku?

Af hverju þurfum við alltaf að gera eins og hinir?

Af hverju þurfti að lita fallega rauða hárið á Eika dökkt?

Af hverju?

Af því að þannig er bara lífið myndi 5 ára dóttir mín svara þessum spurningum.

Þessa dagana er allt svo yndislegt hjá henni. Þegar ég spyr hana hvernig dagurinn var hjá henni svarar hún: "Þetta var yndislegur dagur í leikskólnaum". Þegar ég spyr hana hvað hún fékk að borða á leikskólanum þá svara hún: "Ég fékk yndislegan mat á leikskólanum". Þegar ég spyr hana hvernig hún svaf í nótt þá svara hún: "Þetta var yndisleg nótt".

Ég ætla að taka hana mér til fyrirmyndar og segja: Það er yndislegt að vera eins og hinir, syngja lagið okkar á ensku og vera með dökkt hár!

Til hamingju með daginn Íslendingar, við komumst áfram í kvöld!!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rakel Guðmundsdóttir

Ég held stundum að Ásthildur sé áttræð kona í líkama 5 ára stelpu haha 

Hún er algjört eðalkrútt!!

Rakel Guðmundsdóttir, 10.5.2007 kl. 13:47

2 Smámynd: Kristín Björg Þorsteinsdóttir

Krúttlegt, krúttlegt. En veistu-  það eru talsvert margir sem syngja á móðurmáli sínu í ár. Ég var dálítið hissa...

Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 10.5.2007 kl. 18:26

3 identicon

fyndið hvað maður verður alltaf jafn vonsvikinn þegar Ísland kemst ekki áfram :)

Ásta (x 112) (IP-tala skráð) 10.5.2007 kl. 22:54

4 Smámynd: Guðrún Olga Clausen

Hún Ásthildur mín er jafn yndisleg og Ástrós og Sunna og þær allar sætu ömmustelpur. Meiri krúttin. 

Sorrý en það kom mér ekki á óvart að Eiríkur komst ekki áfram Mér fannst atriðið svona og svona og nett hallærislegt hjá undirspilurunum. Afsakið neikvæðnina. Þar fyrir utan er þetta bara orðið austantjalds "plot " og ástæða fyrir okkur að fara að endurskoða þátttöku okkar í þessari skemmtilega hallærislegu keppni.

Guðrún Olga Clausen, 10.5.2007 kl. 23:34

5 Smámynd: Sara Guðmundsdóttir

Ég tók einmitt eftir því Kristín, hvað margir sungu á móðurmáli sínu. Reyndir var þemað í ár að blanda því saman við enskuna en þetta er kannski skref í rétta átt. Mér finnst íslenska lagið okkar miklu betra á íslenksku fyrir utan hvað enski textinn var hrikalega halló!! En auðvitað á bara að skipta þessari keppni í tvennt, þetta er ekki nokkur hemja. Ein hugmyndin væri samt að kaupa okkur inn í hana eins og Bretar, Frakkar, Spánverjar og Ítalir.

Á næsta ári sendum við svo Buffið og allt verður gott og fallegt

Sara Guðmundsdóttir, 11.5.2007 kl. 11:22

6 identicon

Já, er innilega sammála þér með textann. Ljóðlínur eins og....Passion killed by acid rain/A rollercoaster in my brain... úff ? Fannst þetta glatað. Vantaði bara möllettið á Eika. Austur-evrópu fannst þetta hallærislegt !!  Umhugsunarvert....

Anna Jóhannsdóttir (IP-tala skráð) 11.5.2007 kl. 13:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sara Guðmundsdóttir

Höfundur

Sara Guðmundsdóttir
Sara Guðmundsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 20080112221024 21
  • 20080112195653 21
  • 20080109013409 29
  • 20080109013408 28
  • Sara & Bjarki Næturvaktin

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband